Já það er ekki mikið að segja, en þó mikið búið að vera gerast. Bara búin að vera dúllast með dúllunni minni henniBirtu Ósk sem er algjört yndi Hún dafnar vel og er bara æðisleg í alla staði.
Við fórum til Vopnafjarðar eins og sést í færslunni hér fyrir neðan og var það rosalega gaman og gott að komst aðeins í burtu. Það var fínt í brúðkaupinu og voru hjónin voða sæt. Við mæðgur vorum ekkert voðalega lengi í veislunni því litla daman var ekkert spennt fyrir háfaðanum sem var þarna og náði sér ekki niður, en svona er það bara. Annars er lítið annað að frétta hjá okkur, erum bara duglegar að fara út að labba og fara í mat til afa og ömmuGott að borða hjá henni ömmu, og reyna komast yfir það að horfa á allar myndirnar á flakkaranum sem ég á eftir að horfa á, svo að ég geti sett fleiri innáog eru þær nokkuð margar.
Bára kom og eldaði fyrir mig,Sædísi, Stjána og Bjössa um daginn, því hún var að fara aftur á Laugarvatn í skólann og eldaði hún handa okkur þennan líka æðislega kjúklingarétt sem ég á nú örugglega eftir að elda e h tíman sjálf, en okkur fannst rétturinn það góður að allt kláraðist og er það nú bara nokkuð gott. Ég og Bára :) hún var að kveðja Birtu sína :(
þarna var Stjáni að svæfa Birtu:) En framundan eru fleiri göngutúrar og skírn Litla dúllan verður skírð 20 september og ætlar Elli fyrverandi kennari og núverandi prestur að koma og skíra hana, sem verður bara æði. Ætlum að hafa veisluna heima hjá mömmu og pabba, og á boðstólum ætlum við að hafa humarsúpu og brauð og svo bara nokkrar kökur með kaffinu bara svona létt og laggott. En skrifa meira um það síðar. Ætla ekki að hafa þetta lengra, einfaldlega af því að ég hef lítið að segja, ekki mikið að gerast þegar maður á svona litla dollu til að hugsa um, jú kannski nóg að gera en bara svona hlutir sem ekki er skemmtilegt að lesa um sem sagt bleyjuskipti og brjóstagafir heheh Bæjó
Sjá nánar á saedis.bloggar.is