Saumaskapur, fótbolti og kanilsnúðar :DSigurbjörg Guðmundsdóttir
Jæja ætli maður verði ekki að blogga aðeins. Annars er bara búið að vera nóg að gera, búin að sitja hér á hverju kveldi og sauma eins og ég hafi aldrei gert neitt annað. Ég er sem sagt að sauma eitt stykki jólasokk, handa litlu stelpunni minn, ji hvað ég er dugleg mar
Áfram Ítalía
ekki segja mér stelpur að það sé ekki gaman að horfa á fótbolta, og þá helst Ítalska landsliðið![]()
Fjölskyldan útá Benidorm og það er ekki laust við það að maður sakni þeirra agalega mikið, en þau koma heim eftir viku og þá verður kátt á hjalla
(naflastrengurinn óx aftur á milli mín og mömmu eftir að ég varð ólétt) hehe en ég hef Sædísi hér til að stytta mér stundirnar. Gaman að fá að sjá pabba gamla sem er búin að raka af sér skeggið, ójá kallinn bara búin að raka sig, ég hef aldrei séð pabba með annað en þetta skegg sitt þannig að það verður gaman að sjá, ætli hann yngist ekki bara um nokkur ár
En ég bíð spennt eftir að þau komi heim og þá tekur við að undirbúa allt fyrir komu litlu prinsessunnar![]()

Sædís og Anna Jóna byrjuðu í dag í vinnunni og held ég að þeim hafi bara líkað ágætlega, allavega það sem af er. Fínt að hafa hana Sædísi í eldhúsinu með mér til þess að hjálpa mér að gera það sem ég má ekki, og rétta mér hluti
Athugasemdir
1
Sædís skrifar:
Já bakarameistarinn var flottur í dag. Allir kanilsnúðarnir kláruðust eftir að þú fórst... þ.e.a.s starfsfólkið át þá. Þeir voru fjarlægðir úr sölunni því það var hægt að drepa mann með þeim hehe :) En það verðu taka tvö í dag. En ég bíst ekki við því að koma með þér upp í Lón um helgina. Ætla trúlega bara að chilla hér niðurfrá, hver veit nema maður skelli sér bara á ball líka :) Kemur allt í ljós. Þú skellir þér bara með okkur :)
12. júní 2008 klukkan 09:43
2
sibba skrifar:
já þær voru ekki alveg eins og þær áttu að vera en gott að þið gátuð borðað þær:D en taka 2 var bara eins og hún átti að vera og ekki voru súkkulaðibitakökurnar verri:D
það er bara svona þegar ofninn er of öflugur fyrir það sem að segir í uppskriftinni:D hehe en ég veit það bara í framtíðinni:D
það er bara svona þegar ofninn er of öflugur fyrir það sem að segir í uppskriftinni:D hehe en ég veit það bara í framtíðinni:D
12. júní 2008 klukkan 21:05
3
Lovísa Ósk skrifar:
Hæ skvís, var að læra í gær hvernig á að setja link inná síðuna eftir að blogginu var breytt, bæti þér við ;) En allavega kvitt kvitt :D
13. júní 2008 klukkan 08:36
5
Bára skrifar:
Sem varð nú að sunnudagssteik hehehhe með fulla kistu af humri sussuss,, já ég vona að við getum fundið einhvern frídag saman og skell okkur í sæluna ;) var að koma heim eftir þrusu fótboltaferð...4-0 !! Sé þig á morgun skvís,, var bara strax farin að sakkna þín og litlu dollu hehhe
19. júní 2008 klukkan 02:32
