JammmmSigurbjörg Guðmundsdóttir
Hvað á maður að segja, hmmmm það er svo lítið sem ég hef að skrifa um hérna. Maður er bara á fullu í að hugsa um litlu snúlluna sína sem er algjör engill
Þess á milli horfir maður á sjónvarpið eða saumar Buchilla. Ég er að fylgjast með nokkuð mörgum sjónvarpsþáttum og þegar maður á svona litla dúllu sem þarf að hugsa svoldið mikið um og á þeim tímum sem að gott er að horfa á sjónvarpið, og þá missir maður oft af þeim þegar þeir eru sýndir í sjónvarpinu þannig að gott er að fara og hlaða þeim niður bara í tölvunni og inná flakkarann og þá getur maður horft á þá þegar maður vill og hefur tíma
Ég var hálf hrædd við það ná mér í þætti og myndir svona ólöglega því maður er alltaf að heyra sögur frá því að það eigi að fara reyna kæra fólk sem að gerir þetta í stórum stíl og vildi ég nú ekki eiga það á hættu, en það virðist ekki vera gerast því ég þekki fullt af fólki sem er að gera þetta og hefur verið að gera lengi, þannig að ég byrjaði bara á að gera þetta líka, og er ég því búin að breyta net tengingunni minni yfir í bestur og er þá með ótakmarkað niðurhal og ætla ég að vera dugleg að hlaða niður góðum myndum og þáttum fyrir jólin svo hægt sé að hafa það gott með fjölskyldunni yfir sjónvarpinu svona þegar maður hefur ekkert að gera
Úff já jólin að nálgast og verð ég nú bara að segja að það sé nú bara svolítill spenningur komin í mína
Hlakka til að fara skreita allt hérna heima og setja jólaseriurnar upp aftur, aaa eða stinga þeim í samband því að hér á þessu heimili eru þær búnar að vera uppi síðan á seinustu jólum heheh
en ég þarf nú að fara í Húsasmiðjuna og kaupa mér eina úti seríu til þess að setja á svalirnar og er ég nú að pæla í að gera það bara á morgun, því að NÆSTU helgi þá er fyrsti í aðventu
jeyyyyyyy gaman gaman. Hlakka rosaleg til þess að hitta hana Báru mína þegar hún kemur heim yfir jólin og hana Þórey mína líka (ef hún kemur)
alltaf jafn gaman að fá vini og ættingja heim yfir jólin. Mig langar rosalega að fara á námskeið í að búa til aðventukransa sem þær í Blóm og Broderí ætla halda næstu daga, en er að pæla í að spara pening freka og reyna gera eitthvað hérna heima bara úr e h drasli sem hægt er að finna, því ekki veitir mér af að spara pening, því ég er að fara til Reykjavíkur 10 des og ætla ég að versla mér þar e h föt og jólagjafir, á eftir að kaupa 6 jólagjafir en veit svona næstum því hvað ég ætla kaupa, þannig að það er bara að fara í bæinn og leita eftir því
Ætlum við nú líka að borða eitthvað gott og hitta góða vini og ættingja sem verður bara gaman og er nú e h spenningur líka fyrir því.
Fór á Bítlashowið um daginn og var það bara alveg ágætt, en hefði ég nú viljað fá betri mat fyrir peninginn sem að ég var að borga fyrir þetta, en showið var fínt. 
En ég held ég láti þetta gott heita, því ég hef lítið annað að segja en kem nú með aðra færslu eftir Rvk ferð og þegar búið er að skreita húsið og kveikja á seriunum, en núna ætla ég að fara skrifa jóladiska til þess að hlusta á þegar ég fer að skreita og svona 
Já þú segir nokkuð:DSigurbjörg Guðmundsdóttir
Jæja Anna Jóna mín nú skal ég rita hér nokkur orð fyrir þigÞann 1 nóvember ætla ég að skella mér með nokkrum vinum á showið á Hótel Höfn og á það auðvitað eftir að vera stuð út í geng, Lovísa kemur akkurat þessa helgi með bróður sínum og vinnunni hans og verður æðislegt að skralla aðeins með henni
Jæja Anna Jóna er þetta ekki nóg í bili ?????
Love ya people over and out
Klukk klukk.Sigurbjörg Guðmundsdóttir
Jæja Sædís systir klukkaði mig og ætli ég verði ekki að fylla þetta út4 störf.
Móna
Veitingastaðurinn Ósinn
Leikskólinn Krakkakot
KaffiHornið
4 bíómyndir
Blood dimond
Scarface
Dirty Dancing
Sex and the city movie
4 staðir sem ég hef búið á
Hornafjörður
Reykjavík
Reiðafjörður í viku, entist ekki lengur:)
Hef hvergi annars staðar búið hehe
4 sjónvarpsþættir
Friends
Desperate housewifes
Prison break
Greys Anatomy
4 staðir í fríum
Sumarbústaðurinn upp í Lóni
Ísland
Spánn
Krít
4 netsíður
chick.bloggar.is
Dolla.barnaland.is
Mbl.is
Saedis.bloggar.is
fernt matarkyns
Kjúklingur m/margvíslegu ívafi
Svínakjöt
Bleikja
Heimalöguð pizza
4 óskastaðir akkúrat núna
Í einhverju sumarbústað með arin og heitum potti
Einhversstaðar þar sem er sól og sumar
Bandaríkin
London
4 sem ég klukka
Helga Vala
Lovísa
Anna Jóna Úlf ef hún skoðar bloggið mitt e h tíman :)
En kem með blogg í næstu viku:) mikið að gerast og lítill tími:)
Lítið að segja !!!!Sigurbjörg Guðmundsdóttir
Já það er ekki mikið að segja, en þó mikið búið að vera gerast. Bara búin að vera dúllast með dúllunni minni henniBirtu ÓskVið fórum til Vopnafjarðar eins og sést í færslunni hér fyrir neðan og var það rosalega gaman og gott að komst aðeins í burtu. Það var fínt í brúðkaupinu og voru hjónin voða sæt. Við mæðgur vorum ekkert voðalega lengi í veislunni því litla daman var ekkert spennt fyrir háfaðanum sem var þarna og náði sér ekki niður, en svona er það bara. Annars er lítið annað að frétta hjá okkur, erum bara duglegar að fara út að labba og fara í mat til afa og ömmu
Bára kom og eldaði fyrir mig,Sædísi, Stjána og Bjössa um daginn, því hún var að fara aftur á Laugarvatn í skólann

Ég og Bára :) hún var að kveðja Birtu sína :(

þarna var Stjáni að svæfa Birtu:)
En framundan eru fleiri göngutúrar og skírn
Bæjó
Hamingjusöm :DSigurbjörg Guðmundsdóttir
Jæja þá er litla dollan komin í heiminn og búin að bræða hjartað hennar mömmu sinnar
Birta Ósk á leiðinni heim til afa og ömmu
Nóg er að gera og því hef ég ekki verið dugleg að skrifa hér og verð örugglega ekki dugleg á næstunni
En frammundan er ferð til Vopnafjarðar 8 ágúst, ætlum við að dveljast þar yfir helgi til þess að mæta í giftingu hjá Elísu frænku og verður það bara spennandi, gott að komst aðeins í burtu frá Sandbakkanum og Höfn
En ætla ekki að hafa þetta lengra, þangað til næst kiss kiss
Sibba og Birta Ósk
Hef ekkert að segjaSigurbjörg Guðmundsdóttir
jahá eins og titillinn á færslunni gefur til kynna hef ég eiginlega ekkert að segja, voða lítið búið að gerast í mínu lífi undanfarið. Ég hætti að vinna núna seinasta fimmtudag og er bara búin að liggja í leti síðan. Safna kröftum fyrir komandi átökÉg er sem sagt bara að bíða eftir að litla dollan mín ákveður að láta sjá sig og vona ég að það verðir bara um helgina
seeeeeeeya people kv sibba og litla dollan sem ætlar að koma í heiminn um helgina svo að mamma hennar leiðist ekki svona rosalega mikið
Ein stutt.Sigurbjörg Guðmundsdóttir
Jæja ætla skrifa hér eina stutta færslu hef lítið að segja. Helgin sem margir hafa beðið eftir er að ganga í garð og er það helgin sem kennd er við Hátíð á HöfnEn þangað til næst see ya

Dagsi í namminu

Pabbi minn vildi ekki vera með í Kubb

Dagur og Sædís að REYNA vinna mömmu en gekk ekki vel

Sjáiði sveifluna hjá kéllunni
Framfarir eða hvað ???Sigurbjörg Guðmundsdóttir
Jæja þá skrifa ég hér inn enn og aftur, voða lítið að segja en ætli ég geti nú ekki fundið mér eitthvað til þess að skrifa hér um
Líf mitt búið að vera frekar rólegt seinustu daga, fjölskyldan kom heim á föstudaginn mér til mikillar ánægju og er ég búin að eyða þeim frídögum sem ég hef átt með þeim og erum við aðal ega búin að vera horfa á fótbolta
Mamma og pabbi héldu með Hollandi og ég með Ítalíu þannig að bæði liðin dottin út, og eftir leikinn í kveld þá eru það Þýskaland og Spánn sem að berjast um titillinn, og ætli það verði ekki bara hörku leikur. Veit ekki alveg með hverjum ég held en ég á svolítið erfitt með að halda með Spáni því að það voru þeir sem að unnu Ítali með þeim afleiðingum að þeir féllu úr leik og ég hef aldrei verið neitt mikið fan í sambandi við Þýskaland, þannig að ætli ég þurfi ekki að kyngja stoltinu og haldi með Spáni í þetta skiptið![]()

mmmm dilisíus
Á sunnudaginn 14 júní fórum við Sædís, Bára og Jóna Benný uppí lón til þess að stytta okkur stundirnar, sváfum við eina nótt því við þurftum að mæta í vinnuna daginn eftir en ég held ég geti sagt fyrir okkur allar að við hefðum alveg viljað vera aðeins lengur, nótt eða svo, en það verður bara að bíða betri tíma. Það var margt brallað í lóninu, til dæmis hoppað á trampólíninu, sumar betri en aðrar


Við systurnar mjög efnilegar í húllinu ![]()

Verðið að spila 5 upp ![]()

Jóna að hjálpa til við að elda
ég var svo dugleg að ég lagði á borðið
hehe
En jæja ætli ég láti þetta ekki nægja í bili er svona að reyna mana mig uppí það að fara skúra en það kemur bara í ljós hvort það tekst:D ég er sem sagt komin í helgarfrí sem er bara gott, og er ég að vonast til þess að foreldrar mínir nenni að koma með mér uppí lón til þess að slappa af en er ekki viss, það þarf að gera eitt stykki rúm tilbúið en það kemur bara í ljós þegar nær dregur.
Kveð í bili Sibba og litla dolla ![]()
Saumaskapur, fótbolti og kanilsnúðar :DSigurbjörg Guðmundsdóttir
Jæja ætli maður verði ekki að blogga aðeins. Annars er bara búið að vera nóg að gera, búin að sitja hér á hverju kveldi og sauma eins og ég hafi aldrei gert neitt annað. Ég er sem sagt að sauma eitt stykki jólasokk, handa litlu stelpunni minn, ji hvað ég er dugleg mar
Áfram Ítalía
ekki segja mér stelpur að það sé ekki gaman að horfa á fótbolta, og þá helst Ítalska landsliðið![]()
Fjölskyldan útá Benidorm og það er ekki laust við það að maður sakni þeirra agalega mikið, en þau koma heim eftir viku og þá verður kátt á hjalla
(naflastrengurinn óx aftur á milli mín og mömmu eftir að ég varð ólétt) hehe en ég hef Sædísi hér til að stytta mér stundirnar. Gaman að fá að sjá pabba gamla sem er búin að raka af sér skeggið, ójá kallinn bara búin að raka sig, ég hef aldrei séð pabba með annað en þetta skegg sitt þannig að það verður gaman að sjá, ætli hann yngist ekki bara um nokkur ár
En ég bíð spennt eftir að þau komi heim og þá tekur við að undirbúa allt fyrir komu litlu prinsessunnar![]()

Sædís og Anna Jóna byrjuðu í dag í vinnunni og held ég að þeim hafi bara líkað ágætlega, allavega það sem af er. Fínt að hafa hana Sædísi í eldhúsinu með mér til þess að hjálpa mér að gera það sem ég má ekki, og rétta mér hluti
ÖÖÖmurlegt.Sigurbjörg Guðmundsdóttir
Já okkur gékk ekki eins vel og við héldum að okkur myndi ganga, en KANNSKI að það komi seinna, en það þarf mikið að breytast svo að til þess komi. Til dæmis að breyta þessari keppni hreinlega. En ég nenni ekki að fara ræða þetta eitthvað mikið meira, svona er þetta bara og mun örugglega alltaf vera. En þau stóðu sig samt rosalega vel finnst mér og megum við bara vera stolt af þeim held égEn það var rosalega fínt í útskriftarveislunni/Eurovision veislunni hjá Bennaling, mikið borðað og auðvitað horft á keppninga. Svo um 23:00 leitið lá leið okkar allra út til þess að horfa á flugeldana sem að Fiddi keypti, og var það bomba á stærð við fiskbretti.

Víííííí sprengja

Búið að sprengja :D
En sjómannahelgin væntanleg næstu helgi og er ég að pæla í að reyna fá foreldrana mína með mér uppí lón bara, því ég hef nú lítið að gera hér og alltaf gott að vera uppí lóni, kannski grilla humarinn sem að Bára sæta sjóari gaf mér í fyrradag
Á laugardaginn er planið að fara út að borða með henni Unu minni því að hún er að fara flytja til Rvk mér til mikillar ama
En já ég ætla að fara hætta þessum skrifum í bili. Ég nenni ekki meira en læt í mér heyra bráðlega.
bæjó bæjó
